Kæri íbúi Akraness, Hvalfjarðarsveitar og Kjósahrepps...
Nú er unnið að uppfærslu á Áfangastaðaáætlun Vesturlands og gerð nýrrar aðgerðaáætlunar fyrir árin 2021-2023.
Þér er hér með boðið að taka þátt í leiðbeinandi vali á viðfangsefnum sem sett verða í forgang varðandi verkefni tengd innviðum áfangastaða í aðgerðaráætlun Áfangastaðaáætlunar Vesturlands 2021-2023.
Í könnuninni hér fyrir neðan eru listaðir upp staðir og verkefni sem horft er til að þurfi að vinna að í öllum sveitarfélögum sunnan Skarðsheiðar.
Þú getur lagt þínar áherslur á vogarskálarnar með því að velja þau verkefni sem þú vilt setja í forgang að unnið verði að á tímabilinu 2021-2023.
Þú getur hvort heldur sem þú vilt valið þrjú áhersluverkefni á öllum listunum – eða valið bara verkefni á þeim lista sem stendur þér næst.
Til að forgangsraða á listanum getur þú valið með flettiflipanum eða dregið verkefnið til á listanum og raðað upp þinni forgangsröðun. Staður sem þú merkir nr. 1,2,3 fá stig í leiðbeinandi val um forgangsröðun inn í aðgerðaráætlun 2021-2023.