Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Þekkingarverðlauna FVH 2024.
Við val á Þekkingarfyrirtæki ársins verður horft til fyrirtækja sem hafa þróað eða innleitt tækinýjungar og/eða gervigreind með eftirtektarverðum hætti í sínum rekstri. Þá verður litið sérstaklega til fyrirtækja þar sem mælanlegur árangur hefur náðst með tækninýjungunni sem hefur haft jákvæð áhrif á rekstur fyrirtækisins og/eða samfélagið í heild sinni.
Einnig er leitast eftir tilnefningum fyrir viðskiptafræðing eða hagfræðinga ársins.